DS Lausnir logo
crane machine

Potain S.A. kranar

Við hjá DS Lausnum erum stoltir samstarfsaðilar Potain S.A. sem er franskur framleiðandi turnkrana. Það er ekki að ástæðulausu að Potain kranar eru meðal vinsælustu byggingarkrana í heiminum, en Potain er með rúmlega fjórðungs markaðshlutdeild af öllum turnkrönum á heimsvísu. Frá árinu 2001 hefur Potein verið hluti af Manitowoc Cranes Group sem hefur höfuðstöðvar í Bandaríkjunum og er eigandi Grove, Manitowoc, National Crane, Potain og Shuttlelift og hefur starfsemi víðsvegar um heim.

Hefbundinn sjálfreisandi krana þarf að flytja milli staða án ballesta og eru stillifætur kranans skrúfaðir. Þessir kranar koma þó allir með eigin vinnustaða hjólastelli (25Khm) sem dugir til allra styttri flutninga. Einföld uppsetningartækni gerir sérfræðiþekkingu óþarfa og eru þannig viðskiptavinir í flestum tilfellum færir um að sjá alfarið um rekstur og tilfærslur þessara krana. DS-Lausnir ehf eiga svo til hjólastell til lengri flutninga sem stendur viðskiptavinum til boða. Þannig er hægt að fara með þessa krana milli landshluta með minnsta mögulega kostnaði.