Byggingakranar til leigu
DS-Lausnir ehf eiga stóran flota af byggingarkrönum til leigu allt frá minnstu sjálfreisandi krönum til stærstu gerða turnkrana og allar stærðir þar á milli.
Við bjóðum eingöngu upp á traust tæki og hefur leiguflotinn okkar markvisst verið yngdur upp til þess að tryggja rekstraröryggi.
Með þessum breiða flota getum við boðið mikinn sveigjanleika fyrir leigutaka. Þannig leggjum við okkar af mörkum til þess að hámarka nýtingu á vinnusvæðum með hagkæmri samsetningu tækja.
Meðal sérlausnum sem í boði eru:
- Keyranlegan undirvagn á teinum
- Hækkunarstykki fyrir breytanlega krókhæðir
- Lækkunarkitt fyrir lágar krókhæðir
- Vindhraðamælir
- Hindrunarljós fyrir flugumferð,
- Hraðkranar ofl.
Tækniblöð:
- 16m sjálfreisandi krani
- 24m sjálfreisandi krani
- 28m sjálfreisandi krani
- 30m sjálfreisandi krani
- 33m sjálfreisandi krani
- 36m sjálfreisandi krani
- 40m sjálfreisandi krani
- 43m sjálfreisandi krani
- 45m sjálfreisandi krani
Hraðkranar til leigu
Einnig bjóða DS-Lausnir til leigu úrval af hraðkrönum – sem eru sjálfreisandi kranar sem koma fullbúnir á vinnustaði og henta því einkar vel þar sem ekki er þörf fyrir krana í langan tíma.
Garðveggir og uppsetning á forsmíðuðum CLT timbureiningum eru dæmi um verkefni þar sem hraðkrani er lang hagstæðasta lausnin sem í boði er.
Turnkranar til leigu
DS-lausnir eiga fjölmarga turnkrana af mismunandi stærðum fyrir vinnsvæði sem þurfa meiri lyftigetu í hærri hæðum.
Leiguverð á turnkrönum er mismunandi eftir búnaði og lengd leigutíma.
Vinsamlega leitið tilboða í hvert verkefni fyrir sig.
Hér er tækniblað fyrir meðalstóran turnkrana sem við leigjum út
Fyrir stærri verkefni
Við veitum faglega ráðgjöf og finnum lausnina sem hentar þínu verkefni. Leitið upplýsinga hjá okkur.